Smá skýrleiki, hvern vinnudag.
Eykt heldur utan um tíma, fyrirframgreidda tíma, samninga, reikninga og launaundirbúning fyrir íslensk þjónustufyrirtæki. Allt á einum stað, svo mánaðamótin verða einföld.
Fyrirframgreiddir tímar sem allir geta treyst
Viðskiptavinur kaupir tímapakka og hver unnin mínúta dregst af inneigninni. Hver hreyfing er skráð og aldrei breytt eftir á, og viðskiptavinurinn sér sjálfur stöðuna og í hvað tíminn fór.
- Mánaðarpakkar, klippikort, retainer og þak
- Ónýttir tímar færast á milli mánaða eftir samningi
- Viðskiptavinir skrá sig inn og sjá sína stöðu
Inneign eftir
23:15 klst. af 40:00
Allt sem fer á milli tímans og reikningsins
Tímaskráning
Tímamælir eða handskráning, á tölvunni og í símanum. Eyður í deginum sjást áður en þær gleymast.
Samningar og tilboð
Tímagjald, þrepaverð, pakkar og þak. Samþykkt tilboð verður að samningi og verð má hækka með launavísitölu.
Reikningar í Payday
Mánuðurinn er gerður upp og hver reikningur fer í Payday sem drög. Ekkert fer til viðskiptavinar fyrr en þú sendir það.
Launaundirbúningur
Unnir tímar, frí, orlof og skráningar eins og akstur og hádegismatur, tilbúið fyrir launakeyrsluna.
Frí
Starfsfólk sækir um frí, stjórnandi svarar og allir sjá hver er frá og hvenær.
Kostnaður
Taktu mynd af kvittun í símanum. Kostnaðurinn fer á reikning viðskiptavinar með álaginu sem þú velur.
Taktu söguna með þér
Tímaskráningar, viðskiptavinir og verkefni flytjast inn úr kerfinu sem þú notar í dag, svo enginn byrjar á auðu blaði. Notar þú annað kerfi? Segðu okkur frá því í umsókninni.
Hvernig stendur vikan? Skráðu svo tvo tíma á Ljósvaka í morgun.
Skráði 2:00 á Ljósvaka, 9:00 til 11:00. Þú ert hálfum degi á undan áætlun í mánuðinum.
Skráðu tímann eins og þú segir frá honum
Tengdu Claude, ChatGPT eða VS Code við Eykt. Spurðu hvernig vikan stendur eða segðu hvað þú gerðir, og aðstoðarmaðurinn vinnur í Eykt fyrir þína hönd. Breytingar á verði og inneign eru sýndar og staðfestar áður en þær vistast.
Prófaðu Eykt með okkur
Fyrirtæki sem við þekkjum nota Eykt núna og segja okkur hvað virkar og hvað ekki. Viltu vera með?
- 1Skráðu þig innBúðu til aðgang með netfanginu þínu.
- 2Sæktu umSegðu okkur frá fyrirtækinu og hvað þið viljið fá út úr Eykt.
- 3ByrjaðuÞegar umsóknin er samþykkt býður þú þínu fólki og flytur tímana inn.